April skýrslan

Það er komið svo langt fram yfir páska að ég verð nú að skrifa eitthvað þó svo það séu bara nokkrar setningar. Ég er að fara í norskupróf þann 9. maí, og tek ég það í skólanum hennar Rakelar. Ég hef verið í fjarnámi frá VMA, og ætla að halda því áfram þangað til ég næ almennilegum tökkum á norskunni.

Næsta vetur verður nýútskrifaður leikskólakennari með mér á deildinni en hún hefur verið í Gana í Afríku í æfingarkennslu síðastliðna 3 mánuði. Hún hefur unnið á leikskólanum mínum með náminu svo ég þekki hana a vel. Hún sagði að það hefði verið sjokk að koma til Gana. þetta átti að vera ríki hlutinn af Gana og það var ekkert til af neinu hvorki bækur leikföng eða húsgögn. Nema í svo takmörkuðu magni að það tók því varla að nefna það. Þarna voru börn öguð með því á slá þau. Tveggja ára börn áttu að sitja kyrr í samverustundum, annars væru þau slegin með priki. Það var algengt að kennarar komu seint eða bara als ekki og þótti það bara eðlilegt. Tíma leysi fólks var álíka mikið og tíma sprengjan hjá okkur. Við öndum í takt við klukkuna en þau anda í takt við lífið. Ef hún og vinkona hennar sem var þarna með henni ætluðu að gera eitthvað saman með kennurum á ákveðnum tíma þá tóku þær skírt fram að það ætti að vera samkvæmt Norskri tíma mætingu ekki Gana meybe time. Það verður spennandi að vita hvað hún kemur með af Gana ævintýrinum til okkar.

Þetta er nú orðið nokkuð gott í dag   

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Ægilegt að heyra þetta. Að slá tveggja ára börn og ætlast til að þau sitji kyrr. a href="http://s254.photobucket.com/albums/hh108/telpukona/?action=view&current=Frown.gif" target="_blank">Photobucket

Jórunn Sigurbergsdóttir , 19.4.2008 kl. 18:50

2 Smámynd: Guðrún Guðmunda Sigurðardóttir

kossar og knús múttan mín   

Guðrún Guðmunda Sigurðardóttir, 20.4.2008 kl. 11:24

3 Smámynd: Laugheiður Gunnarsdóttir

gamana að sjá að þú kannt að skrifa íslenskuna enþá dúllan mín  gott að íslensku leikskólarnir beiti ekki þessum að ferðum við ögun barnana   

Laugheiður Gunnarsdóttir, 20.4.2008 kl. 12:54

4 Smámynd: Ólafur fannberg

góð aprilskýsla hehe

Ólafur fannberg, 20.4.2008 kl. 16:47

5 identicon

KNÚS!!!!!!!!!!!!!!!!!

Kristjana Engliráð Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 02:37

6 Smámynd: Kristín Magnúsdóttir

Gott að þú kannt að pikka enþá :)

Kristín Magnúsdóttir, 23.4.2008 kl. 19:33

7 Smámynd: Kolla

Gangi þér rosa vel í prófinu

Kolla, 30.4.2008 kl. 19:23

8 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

a href="http://s254.photobucket.com/albums/hh108/telpukona/?action=view&current=smiley.png" target="_blank">Photobucket Unnur til hamingju með afmælið þann 29. apríl.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 2.5.2008 kl. 17:38

9 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Vá hvað hann er stór ég ætlaði að sýna barnabörnunum hvernig þetta er gert. Photobucket Hér koma afmælisblómin.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 2.5.2008 kl. 17:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband