25.8.2007 | 05:54
its a live
jæja nú er komið að því að skrifa smá. Nýi bíllin hans Gunna er frábær og er Gunni komin með algera bíladellu. Nokkra klukkutíma akstur er ekkert í hans augum, hann er tæpan klukkutíma í vinnuna og finnst það ekkert langt. Ég myndi ekki nenna því. Ég fékk fyrir mestu náð að prufa hann einu sinni þegar ég skutlaði Guðrúnu heim en þá var hann í miðju spjalli við tíu persónur og mikið hlegið og talað upphátt eins og hans er von og vísa. Já hann situr ekki hljóður þegar hann er í tölvunni nei og nei. Fingurnir eru svo hraðvirkir á lyklaborðinu að hann hægri oft á sér með að segja það sem hann skrifar svo úr því verði eitthvað leshæft. Hann er mjög fljótur að tikka á þetta lyklaborð það sem hann er að hugsa en svo á hann erfiðara með að tikka það sem hann les af blaði. Sennilega bara óvani.
Rakel og Róbert eru nú byrjuð á fullu eftir fríið í Grunnskóla og leikskóla. Róbert er á deildinni minni og alger engill. Ég var fyrst hrædd um að hann myndi hanga mikið í mér en hann er svo upptekin við að leika sér og taka þátt í því sem er um að vera að hann hefur ekkert tíma fyrir svoleiðis.
Þau voru hérna um síðustu helgi, léku sér mikið úti enda þekkja þau hvert einasta barn í nágrenninu og er mikið fjör.
Ég er að hugsa um að setja lykilorð á bloggið mitt svo að þeir sem ekki eiga erindi á síðuna mína hafi aðgang að henni. þá á ég við perra sem taka myndir af börnunum og setja þær á síður sem ég kæri mig ekkert um. ég kem til að senda ykkur bloggvinir mínir aðgangsorð.
Ég kem til að halda áfram að skrifa á blogginu þó svo það verði langt á milli. Ég hef nú ekki mikið úthald ennþá eftir vinnu svo ég mun nota aðra eða þriðju hverja helgi til þess.
Athugasemdir
Ég var ekki að fatta neitt þegar ég fékk e-mail frá þér. Svo tékkaði ég á þessu og jú jú daman komin með lykilorð. Flott hjá þér. Nú ætla ég að gera það sama
Guðrún Guðmunda Sigurðardóttir, 25.8.2007 kl. 06:39
hmmm þegar ég klikkaði á síðuna hjá þér þá þurfti ég ekkert að setja lyklorðið þitt inn...
anyway!
frábært með bílinn hans Gunnsa! hann hefur heldur ekkert breyst hehehe
knús til ykkar!
xx
k
ps: ertu búin að fara ? (u know what I mean hehe!!)
Kristjana Engliráð Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 25.8.2007 kl. 08:41
Sniðugt hjá þér að setja lykilorð á síðuna. Gangi þér vel í vinnunni.
Frábært að Gunnar sé svona ánægður með nýja bílinn
Bestu kveðjur frá
Stavanger
Kolla, 25.8.2007 kl. 10:26
er lykilorðið ekki komið ég þurfti ekki að setja neitt lykilorð .knús og kossar
Laugheiður Gunnarsdóttir, 25.8.2007 kl. 20:18
Bestu kveðjur frá mér frænka.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 26.8.2007 kl. 13:17
Hæ frænka, ég komst inn þegar ég fattaði að það var á í leyniorðinu. Bara að kvitta xxx
Þórunn Día Steinþórsdóttir, 1.9.2007 kl. 21:26
lykilorð hvað er það ekki þarf ég lykilorð á þessa síðu hihihihihi nú mátt þú fara að skrifa smá ,fyrst ég er byrjuð aftur
Laugheiður Gunnarsdóttir, 5.9.2007 kl. 09:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.